Arnarvatnsheiði

Ævintýri á Arnarvatnsheiði Í netfréttablaðinu Flugufréttum föstudaginn 26. júní sl. segir frá býsna ævintýralegri ferð þriggja félaga í veiðifélaginu Ugga

Ævintýri á Arnarvatnsheiði

Í netfréttablaðinu Flugufréttum föstudaginn 26. júní sl. segir frá býsna ævintýralegri ferð þriggja félaga í veiðifélaginu Ugga á Arnarvatnsheiði.

Þeir veiddu vel og létu vel af sér en lentu í hálfgerðum vandræðum því þeir gleymdu öllum matnum heima. Það kom þó ekki að sök því veiðin var góð og fiskurinn úr vötnunum herramannsmatur.

Í Flugufréttum segir Erlingur Guðleifsson, einn meðlima Ugga, meðal annars orðrétt:

"Mín reynsla er sú að Arnarvatn litla gefi jafnan nokkuð vel og stærstu fiskana svona frá klukkan tíu að kvöldi og fram til eitt að nóttu og þangað fórum við á laugardaginn. Veðrið var þá mun betra og veiðin alveg ágæt."



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf