Frá og með 15 ágúst er óheimilt að veiða í ám og lækjum á veiðisvæðinu og gildir þetta
það sem eftir lifir veiðitímabilsins. Þessi regla er sett til að reyna að vernda hrygningarfiskinn á svæðinu.
Fram til 26 ágúst eru seld veiðileyfi í öll vötn á svæðinu en frá og með 26 ágúst er einungis hægt að kaupa
veiðileyfi í Úlfsvatn og þá bara vatnið sjálft.
Það er ekki komin endanleg dagsetning á hvenær lokað verður fyrir alla veiði en það verðu í byrjun september.
Bændadagar hefjast þann 26 ágúst og eru þeir veiðifélags félagar sem ætla sér að fá leigt hús beðnir að hafa
samband sem fyrst.
Annars hefur veiðin verið með ágætum í sumar og fiskurinn vænn. Við viljum hvetja veiðimenn sem vilja deila myndum úr veiðiferð
sumarsins með þeim sem skoða þessa síðu til að senda þær á netfangið sem gefið er upp hérna á síðunni.
Myndirnar sem fljóta hérna með eru frá Bryndísi Brynjólfsdóttur en hún og vinahjón hennar
tóku skyndiákvörðun um að skreppa í Úlfsvatn núna í lok júlí. Ekkert þeirra er kunnugt svæðinu en eftir 3
klukkustunda veiði voru þau búin að fá í soðið og gott betur. Þessi „ veiðiskreppur“ þeirra var vel þess virði og
það kæmi ekki á óvart að rekast á þau þarna aftur næsta sumar.







