Arnarvatnsheiði

Nú fer hver að vera síðastur Nú fer að styttast í veiðitímabilinu á Arnarvatnsheiði þetta árið. Í lok ágúst er lokað fyrir almenna veiði allstaðar nema í

Nú fer hver að vera síðastur

Nú fer að styttast í veiðitímabilinu á Arnarvatnsheiði þetta árið. Í lok ágúst er lokað fyrir almenna veiði allstaðar nema í Úlfsvatni ( bara vatnið sjálft ekki ár og lækir sem renna úr eða í vatnið) og bændadagar taka við í öðrum vötnum. Þá fara þeir lögbýliseigendur sem eru í veiðifélaginu í netaveiði.  Þannig að nú fer hver að vera síðastur að skreppa á heiðina og ná sér í silung í soðið .

 

Í júní þegar opnað er fyrir veiðar á heiðinni hópast menn uppeftir til að verða fyrstir í vötnin.  Þó svo að það sé gaman að komast í opnunina á heiðinni þá eru síðsumarveiðarnar ekki síðri.

Sú mýta hefur stundum skotið upp kollinum að það séu minni líkur að fá góða veiði þegar hausta tekur, en menn skulu nú ekki vanmeta silunginn á heiðinni. Það er jú þannig að fiskur sem kominn er á land veiðist ekki aftur en stór vötn eins og Úlfsvatn rúma marga fiska. Það eru einni mörg vötn sem lítið er farið í t.d Gunnarssonarvatn, Hlíðarvatn og þau vötn sem erfiðara er að komast að en eru samt vel þess virði leggja á sig aðeins lengri bíltúr. 

Þeir veiðimenn sem hafa verið við Úlfsvatn síðustu daga hafa verið að veiða vel, flestir þeirra furða sig þó að því að uppistaða aflans er urriði, á bilinu 2 til 4 pund.  Okkur bárust fréttir frá 4 mönnum sem voru við veiðar í 3 daga og  náðu um 130 fiskum og var bleikjan þar í miklum minnihluta. Eins voru 2 menn í 2 daga og náðu þeir um 40 fiskum í Úlfsvatni og það var einungis urriði, þeir skruppu svo líka í Arnarvatn litla og náðu þar nokkrum bleikjum en fáum urriðum. 

Það eru nokkrir dagar lausir í veiðihúsunum við Úlfavatn núna síðast á tímabilin, eins er hægt að hafa samband við skrifstofu Borgarbyggðar og fá gistingu í gangnamannaskálanum við Úlfsvatn eða Álftakróksskála við Núpatjörn. 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf