
Eins og allir hafa tekið eftir þá hefur tíðarfarið síðustu vikurnar verið annað en það sem við höfum átt að venjast
síðustu árin.
Hérna að neðan er frétt sem birtist í Skessuhorni varðandi opnun og ástand vega á heiðinni.
Opnað verður fyrir veiði á sunnanverðri Arnarvatnsheiði 15. júní eins og undanfarin ár. Enn er þó ófært um
norðanverða heiðina sökum kulda í vor og framan af sumri. Því verða miklar takmarkanir á umferð og akstur bannaður utan malarborinna
vegslóða, að sögn Snorra Jóhannessonar veiðivarðar sem var á ferðinni um heiðina í gær. „Ég keyrði á
harðfenni í Álftárkrók og þar var bylur, sannkallað vetrarríki. Það voru skaflar á nokkrum stöðum á veginum í
Hæðarsporðinum áleiðis norður heiðina. Það er því kolófært ennþá norður yfir heiðina,“ segir
Snorri. „Við ætlum samt að reyna að hanga á því að opna fyrir umferð 15. júní, en einungis yfir Úlfsvatnsvaðið.
Þaðan er hægt að komast að veiðihúsunum við Úlfsvatn og Arnarvatn litla. Þeir sem eiga bókað í veiðihúsin eiga
því að komast í þau. Það er hins vegar ljóst að við verðum að hafa takmarkanir á akstri um vegslóða um heiðina
þar sem aurbleyta er enn víða.
Til dæmis má nefna að vegurinn um Hæðarsporðinn upp af Helluvaði er ófær, en þaðan liggur leiðin í
Álftárkrók og áfram norður heiðina. Sá vegur verður ekki opnaður í bráð,“ segir Snorri.
Snorri flaug yfir Arnarvatnsheiði sl. þriðjudag. Sagði hann að þá hafi verið ís á Gunnarssonavatni og á stórum hluta af Arnarvatni
stóra. „Vötn í þeiri hæð eru enn að hrista af sér vetrarböndin en það má eiginlega segja að hálfgert
vetrarríki sé þarna ennþá. Það er eins og að koma í annan heim, skaflarnir ganga út í vötnin. Þetta eru mikil
viðbrigði miðað við mörg síðastliðin ár, en vissulega man ég eftir svona köldu veðri eins og t.d. vorinu 1979. Menn mega ekki gleyma
því að í rauninni hafa verið afbrigðileg ár undanfarin ár hvað hlýindi varðar. Þessar aðstæður eins og nú munum
við vel frá fyrri tíð. Áður en vegurinn um Hallmundarhraun var lagður var iðulega ekki opnað fyrir umferð á heiðina fyrr en eftir
mánaðamótin júní/júlí. Því finnst mér núna eins og við séum að fara fjörutíu ár aftur
í tímann í veðurfari. Held reyndar að það séu tengsl í efnahag þjóðarinnar og ástandinu í veðrinu,
það er þó önnur saga.







