Arnarvatnsheiði

Sumir fara ótroðnar slóðir Flestir sem hafa lagt leið sína á Arnarvatnsheiði hafa veitt í Úlfsvatni, Arnarvatni litla og vötnunum þar næst. Það þýðir þó

Sumir fara ótroðnar slóðir

Þorgeirvatn séð af veginum að Úlfsvatni
Þorgeirvatn séð af veginum að Úlfsvatni

Flestir sem hafa lagt leið sína á Arnarvatnsheiði hafa veitt í Úlfsvatni, Arnarvatni litla og vötnunum þar næst. Það þýðir þó ekki að vonlítið sé að veiða í einhverjum öðrum vötnum þó svo að það fari ekki neinum sögum af aflabrögðum þar. Þetta sannaðist núna fyrir um hálfum mánuði þegar tveir ungir menn reyndu fyrir sé í Þorgeirsvatni.

Annar mananna var að lesa dagbækur afa síns og þar var þess getið að mikið væri af fiski í þessu vatni og að hann hafi veitt mjög vel þar í net. Við þetta vaknaði veiðimaðurinn og ævintýraþráin í drengnum. Hann heyrði í félaga sínum og var ákveðið að skella sér í könnunarleiðangur, flugustangirnar gerðar klárar og lagt á heiðina seinnipart dags.

Þorgeirsvatn er ekki langt inn á heiði. Það er um 1 km norður af Bjarnarfossi í Norðlingafljóti. Það eru bara Þorvaldsvötn,  Kleppavatn og Fiskivatn sem eru neðar en Þorgeirsvatn (tekið skal fram að Kleppavatn og Fiskivatn tilheyra ekki veiðifélaginu heldur Kalmannstungubændum). Það er enginn slóði að Þorgeirsvatni og óku þeir félagar yfir fljótið á Úlfsvatnsvaðinu og á móts við vatnið og þaðan gengu þeir af stað með flugustangirnar. 

Veðrið var gott í byggð þegar þeir lögðu af stað en upp á heiði var töluvert rok úr suðri. Eftir heilsusamlega göngu komu þeir að vatninu og var það skolað norðanmegin og ákváðu þeir því að fara sunnanmegin og reyna fyrir þér þar. Vatnið leit vel út, greinilega dýpra en þeir höfðu reiknað með og þar voru himbrimar á svamli sem er jú tákn um að þar sé fiskur. Þeir komu sér fyrir þar sem var aðdjúpt og byrjuðu að kasta flugunni. Ekkert gekk í fyrstu en þeir voru staðráðnir í fara ekki tómhentir heim. Eftir hafa reynt hinar ýmsu flugur og þjálfað kasttæknina í töluverðan tíma fór að rofa til. Það gerist oft á heiðinni að um og eftir miðnætti fer að lygna og sú var raunin þennan daginn. Þeir félagar náðu 3 vænum bleikjum á stuttum tíma 2-3 pund en klukkan var orðin margt og þeir búnir að fá sönnun þess að þarna væri hægt að veiða. Því var ákveðið að halda heim á leið og ná smá svefni áður en þeir þyrftu að mæta til vinnu snemma morguninn eftir.

Þeir eru hins vegar staðráðnir í að fara aftur að Þorgeirsvatni núna í sumar og ætla þá að hafa tímann fyrir sér. Við bíðum spennt eftir að fá fregnir úr þeirri ferð.

Það er alltaf gaman þegar menn fara „ótroðnar“ slóðir í veiði og það er næsta víst að á heiðinni eru margar vannýttar gullnámur sem vonandi með tíð og tíma verða aðgengilegri fyrir unnendur stangveiði og fjallalofts.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf