Þótt kreppan hafi skollið á okkur öllum erum við í veiðifélaginu staðráðin í að auka þjónustu við veiðimenn á Arnarvatnsheiði og því var ákveðið að smíða annað 8 manna hús og koma því upp á heiði núna í haust.
Húsið er smíðað eftir sömu teikningu og stærra húsið við Úlfsvatn, þó með smávægilegum breytingum og sú viðamesta er að inni í húsinu er salernisaðstaða. Fyrir þá sem ekki vita hvernig húsið við Úlfsvatn er þá kemur hér smá lýsing: Húsið er átta manna, fjórar kojur sem eru ein og hálf breidd og efri kojur sem eru 1 breidd. Inni er eldhúskrókur, borð, stólar, eldunaraðstaða, rafmagnsljós og rennandi kalt vatn. Þarna er líka salernisaðstaða sem hingað til hefur ekki verið í veiðihúsunum sjálfum, heldur í sér húsi.
Smíði hússins gekk vel og voru það vaskir drengir í uppsveitum Borgafjarðar sem sáu um verkið. Í haust fór flokkur manna með traktora, sturtuvagna og gröfu upp á heiði. Þeir grófu niður undirstöður fyrir húsið, gengu frá rotþró og töluverð vinna var lögð í að betrumbæta veginn að þeim stað þar sem húsið á að vera. Húsið sjálft var svo flutt á heiðina núna í október og stendur það á fallegum stað milli Arfavatns neðra og Arnarvatns litla.
Smávægileg vinna er eftir við húsið, t.d. að smíða verönd við það, ganga frá í kringum það, setja upp eldunaraðstöðu og leggja vatn að því. Við vonumst til að geta klárað það strax við opnun næsta sumar en til að hafa vaðið fyrir neðan okkur hefur verið ákveðið að bóka ekki neina daga í júní í nýja húsið. Hins vegar er sjálfsagt að menn hafi samband og bóki daga í júlí og ágúst. Við munum tilkynna það hér á síðunni ef við náum að klára húsið í tæka tíð svo veiðimenn geti leigt það í júní.
Við vonumst til þess að veiðimenn eigi eftir að nýta sér þessa nýju gistiaðstöðu og það verður gaman
að sjá hvort það leggst ekki vel í menn að hafa veiðihús á þessum stað.







