Arnarvatnsheiði

Umgengni við landið Flestir sem fara á Arnarvatnsheiði vilja veiða en einnig fara menn þangað til að njóta náttúrunnar og friðsældarinnar. Því er mjög

Umgengni við landið


Flestir sem fara á Arnarvatnsheiði vilja veiða en einnig fara menn þangað til að njóta náttúrunnar og friðsældarinnar. Því er mjög leiðinlegt þegar fréttist af því þegar menn ganga ekki vel um náttúruna.  Flestir eru sem betur fer samviskusamir og taka allt það sem þeim tilheyrir aftur með sér til byggða og skilja við vatnsbakkann eins og hann var þegar þeir komu á svæðið.

 

En alltaf kemur það þó fyrir að einhverjir sjá sér ekki fært að bera tómar umbúðir aftur með sér frá veiðistað og er það miður.  Flestum ætti að vera sú byrði léttari, allavega eru tómar umbúðir mun léttari en fullar og tala nú ekki um álið sem hefur þann eiginleika að það má krumpa það saman, svo lítið sem ekkert verður eftir. Okkur hafa borist myndir frá veiðimönnum sem voru að veiða við Úlfsvatn um daginn, ásamt eftirfarandi lýsingu á „dólgsbæli“ á vatnsbakkanum.

„Ekki falleg sjón og veiðimönnum til algjörrar skammar, sennilega ekki veiðimenn heldur „umhverfisdólgar“. Einhverjir hafa verið með eld eða grill við vatnsbakkann, erfitt að sjá hvað hefur verið í gangi, svo hafa menn hent þar bjórdósum og brotið flöskur ofan í þetta. Það er í raun ekki hægt að kalla þetta annað en dólgshátt að ganga svona um náttúru okkar.“

Við viljum brýna fyrir veiðimönnum og öðrum þeim sem leið eiga um Arnarvatnsheiði (eða hvar sem er um náttúru landsins) að ganga vel um. Tökum rusl með okkur til byggða og komum því fyrir þar sem það á heima. Þegar komið er af Arnarvatnsheiðinni sunnanmegin eru ruslagámar og dósasöfnunargámar í Húsafelli. Eins er mjög mikilvægt þegar tíðarfarið er eins þurrt og það hefur verið núna í júlí að menn fari varlega með eld. Það er mjög auðvelt að kveikja í þurrum gróðrinum og getur eldurinn náð að magnast ótrúlega fljótt þannig að mikið tjón getur orðið. Það þarf ekki annað en að hafa t.d  einnota grill á mosanum og þá getur eldur kviknað. Því er mikilvægt að velja góðan stein til að hafa grillið á, hella svo vatni á kolin þegar matseld lýkur og taka svo ruslið til byggða.

Við vonum að við fáum ekki fleiri fréttir af svona umgengni og þökkum þeim sem sjá sóma sinn í að taka til eftir hina fáu sem ekki virða náttúru landsins.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf