Arnarvatnsheiði

Veiðifélagið semur við Borgarbyggð Þann 1 des var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Veiðifélags Arnarvatnsheiðar um leigu á skálunum við

Veiðifélagið semur við Borgarbyggð

Guðmundur Kristinnson formaður veiðifélagsins og Páll sveitastjóri við undirritun leigusamningsins.
Guðmundur Kristinnson formaður veiðifélagsins og Páll sveitastjóri við undirritun leigusamningsins.

Þann 1 des var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Veiðifélags Arnarvatnsheiðar um leigu á skálunum við Úlfsvatn og Álftakrók.
 

Veiðifélagið tekur á leigu allar byggingar á báðum stöðum, það er að sega leitarskála og hesthús. Leigutími er tíu ár með forleigurétti áfram standi vilji til þess. Gert er ráð fyrir að Álftakróksskáli verði að mestu leigður til hestamanna og gönguhópa eins og undanfarin ár, en næsta sumar er hugmyndin að ráðast í miklar endurbætur þar. Úlfsvatnsskáli verður hinsvegar nýttur meira sem aðstaða fyrir veiðimenn. Nóttin í þessum skálum verður seld á kr. 2000 pr. mann í sumar, en kjósi menn að hafa skálana einungis fyrir sig verða menn að semja sérstaklega um það, ella þurfa sætta sig við sambúð með öðrum.
Bókanir á skálunum fara fram hérna á síðunni og ef smellt er á skálann (hérna til hliðar) þá má nálgast nánari upplýsingar um að búnað og annað varðandi skálana.
Með von um að geta veitt veiðimönnum og öðrum ferðalöngum á heiðinni fleiri möguleika á gistingu. 

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf