Arnarvatnsheiði

Veiðisaga frá Ólafi Ólafssyni Við leituðum til veiðimanna sem hafa farið á Arnarvatnsheiði og báðum þá að senda okkur myndir og smá lýsingu á veiðiferðum

Veiðisaga frá Ólafi Ólafssyni

Við leituðum til veiðimanna sem hafa farið á Arnarvatnsheiði og báðum þá að senda okkur myndir og smá lýsingu á veiðiferðum til að deila með öðrum.

Hérna er stutt saga sem okkur barst frá Ólafi Ólafssyni, hann sendi líka nokkrar myndir sem má sjá á myndasíðu, myndir frá veiðimönnum 2009.

 Þökkum honum fyrir að vilja deila reynslu sinni með okkur.

Við fórum þarna nokkrir félagar í 14 skiptið í röð nú um síðustu helgi og áttum enn og aftur frábæra daga.

Það var lagt í hann á fimmtudagskvöldi 2. júlí og að vanda var stefnan sett á Úlfsvatn áArnarvatnsheiði þar sem áætlað var að draga Björg í bú.  Þegar komið var á staðinn var stillt og fallegt veður en menn sögðu Björg hvergi sjáanlega ???.   Líkt og nokkur undanfarið ár var gist ínýja skálanum við Úlfsvatn.  Þar vorum við í góðu yfirlæti og frábæru veðri fram á sunnudag 5. júlí. 

 Drjúgt var reynt við lónbúann bæði föstudag og laugardag og svo voru kvöldvökur niður við vatn fram á nótt þar sem magnaðar og vel ýktar veiðsögur fóru að renna viðstöðulítið upp úr görpunum, helst var stoppað við þá iðju til að draga andann og væta kverkarnar með stöku bauk.

Veiði var mjög góð, Úlfsvatn gaf ágætlega fyrsta kvöldið en svo var farið víða, Ólafsvatn, Arfavötnin, Arnarvatn litla, Refsveina og Stóralón.  Veiddum mikið af fallegum hnullungsbleikjum í ánni sem rennur í Ólafsvatn og einnig þar sem áin rennur í efra Arfavatn.  Færðum okkur niður í Arnarvatn litla og veiddum vel í vesturenda vatnsins, allt saman fallegir urriðar.  Veiddum okkur svo niður Refsveinu sem var dræm en lentum svo í veislu í Stóralóni þar sem við drógum marga tugi af spikfeitum og fjörugum urriðum frá 2-4 pund.   Bæði veiddist á flugu og beitu.   Bleikjan tók Krókinn en urriðinn tók Flæðamús.  

Að venju voru menn hæfilega “væld” en snyrtimennskan þó í fyrirrúmi hjá þessu veiðifélagi sem kallast “ Veiðifélagið upp á Heiðar ” og veiðitúrinn endar að venju á að fara í sund á Húsafelli og skola þar af sér ferðarykið.

Meðlimir veiðifélagsins eru Bergþór Bjarnason, Brynjar Sveinbjörnsson, Freyr Franksson, Henrik Óskar Þórðarson, Hilmar Ólafsson, Kristján D Sigurbergsson, Ólafur Ólafsson, Sæmundur Gunnarsson, Ásgeir K Ólafsson, Valdimar Sigurðsson, Jón Hannes Karlsson og Heiðar Sigurðsson.

Bestu kveðjur og takk fyrir okkur den gang. Ó.Ó.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf