mánudagur 29.júní 2009

Félagar sem voru á sunnanverðri Arnarvatnsheiði um síðustu helgi áttu vart orð til að lýsa veðrinu, fegurðinni og fengsældinni. Þeir voru í skýjunum.
Víða var mjög hlýtt og hægviðrasamt á landinu um síðustu helgi og mjög gott veður á Arnarvatnsheiði. Félagarnir sem við höfðum tal af fóru víða um sunnanverða heiðina; veiddu meðal annars vel í Arnarvatni litla, Stóra lóni, Hlíðarvatni og Hávaðavötnum. En þótt fiskurinn hafi verið fagur þá var það fyrst og fremst veðrið og fegurð hálendisins sem stóð upp úr minningabankanum þegar heim var komið.






